Vera

Sjálfbærniupplýsingar um fyrirtæki

Vera aðstoðar fyrirtæki að miðla upplýsingum um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti í rekstri til hagaðila á samræmdan máta. Hægt er að sækja ítarlega skýrslu á þjónustuvef Creditinfo um sjálfbærniþætti fyrirtækja auk þess sem að hægt er að yfirfara og uppfæra með einföldum hætti upplýsingar um eigið fyrirtæki á Mitt Creditinfo.



Vera - Sjálfbærniupplýsingar á þjónustuvef Creditinfo

Eftirspurn eftir sjálfbærniupplýsingum fyrirtækja hefur aukist umtalsvert með tilheyrandi umfangi og kostnaði við öflun slíkra upplýsinga. Nýtt regluverk hefur og mun gera fyrirtækjum skylt að afla upplýsinga um umhverfisþætti, félagslega þætti og samfélagslega þætti í rekstri viðskiptavina sinna. Til að komast til móts við þessar auknu kröfur hefur Creditinfo kynnt Veru til sögunnar, sem sýnir á einum stað helstu sjálfbærniupplýsingar um íslensk fyrirtæki.

Upplýsingar sem eru aðgengilegar í Veru:

  • Losun gróðurhúsalofttegunda
  • Losunarkræfni atvinnugreinar
  • Dómsmál tengd fyrirtæki
  • Mælikvarðar fyrir sjálfbærniáhættu og tækifæri
  • UFS áhættumat
  • Staða heimsmarkmiða í aðfangakeðju fyrirtækis
  • Sjálfbærniumfjöllun fyrirtækis í fjölmiðlum
  • Sjálfbærniumfjöllun helstu viðskiptalanda
  • Kynjahlutföll starfsmanna, stjórnarmeðlima og framkvæmdastjórnar fyrirtækis
  • Flokkun atvinnustarfsemi samkvæmt flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy) mun birtast í Veru á seinni hluta ársins 2023.

Skilvirk upplýsingamiðlun

Auðvelt að sækja upplýsingar

Auðvelt er að sækja sjálfbærniupplýsingar um íslensk fyrirtæki á þjónustuvef Creditinfo. Þær sjálfbærniupplýsingar sem sóttar eru í Veru nýtast fyrirtækjum sem þurfa að standa skil vegna komandi regluverks á sviði sjálfbærni líkt og SFDR, CSRD, CSDD o.fl.

Einfalt að kalla eftir uppfærðum gögnum

Sjálfbærniupplýsingar sem eru sóttar eru aðgengilegar í 30 daga og á þeim tíma getur þú óskað eftir því að fyrirtækið sem þú ert að kanna uppfæri sínar upplýsingar á Mitt Creditinfo.

Hægt að vista sóttar upplýsingar

Með auknu regluverki á sviði sjálfbærni er mikilvægt að fyrirtæki kanni ítarlega sjálfbærniupplýsingar og sýni fram á að slík athugun hafi verið framkvæmd. Hægt er með einföldum hætti vista sjálfbærniupplýsingar sem sóttar eru um fyrirtæki.


Upplýsingar um mitt fyrirtæki í Veru

Sjálfbærniupplýsingar eru í auknum mæli farnar að verða jafn sjálfsagðar við könnun fyrirtækja og fjárhagsupplýsingar. Umfang og kostnaður við að afla slíkra upplýsinga hefur aukist samhliða og eru fyrirtæki mis vel í stakk búin að miðla upplýsingum um sjálfbærniþætti tengda sinni starfsemi. Vera aðstoðar öll fyrirtæki, hvort sem þau eru smá eða stór, að miðla upplýsingum tengt sjálfbærni til hagaðila á samræmdan máta. Vera getur áætlað hversu mikið þitt fyrirtæki losar af gróðurhúsalofttegundum, við hvaða lönd fyrirtæki eiga viðskipti við og fleira. Ef áætlun Veru er ekki alveg nákvæm er mögulegt að uppfæra upplýsingarnar svo þær endurspegli fyrirtækið enn betur.

Hvernig uppfæri ég upplýsingar um mitt fyrirtæki í Veru?

  • Þegar farið er inn á Mitt Creditinfo má sjá flipa merktan „Mín fyrirtæki“. Á vinstri hlið vefsíðunnar má sjá tengil merktan „Sjálfbærni“.
  • Þar inni er Vera með mismunandi svæðum sem hægt er að uppfæra, til dæmis með upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda frá ykkar rekstri, sjálfbærnistefnu eða helstu viðskiptalönd.
  • Í þeim reitum sem hægt er að breyta er mynd af penna í efra hægra horni reits.

Panta kynningu á Veru